Pallborðið

Viðtalsþáttur á Vísi þar sem kafað er í mál í brennidepli.

Episodes

Sep 24, 2026

46 min

Kjaramál voru til umræðu í Pallborðinu á Vísi. Frestur til að segja upp kjarasamningum vegna forsendubrests rennur út eftir sléttar tvær vikur, eða þann 8. október. Staðan er sögð viðkvæm og kröfur aðila ólíkar. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR mættust í Pallborðinu.

Sep 24, 2026

46 min

Sep 3, 2026

1 hr 1 min

Gera má ráð fyrir að þingveturinn hefjist með hvelli enda nóg um að vera í samfélaginu. Verðbólga hefur ekki verið meiri í tvö ár, forsendur kjarasamninga eru brostnar og enn er óvíst hvernig fer með umsókn Íslands að Evrópusambandinu eftir að þjóðin hafnaði aðildarviðræðum.  Við snertum á þessum málum og mörgum öðrum í beinni útsendingu í Pallborðinu á Vísi.

Sep 3, 2026

1 hr 1 min

Aug 27, 2026

51 min

Farið verður yfir samsæriskenningar og fleiri fullyrðingar sem tæplega standast skoðun í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag í fjórða og síðasta Pallborði Vísis fyrir kosningar. Auk þess verður kosningabaráttan hingað til gerð upp af álitsgjöfum.
Stjórnmálafræðingarnir og þáttastjórnendur Skuggavaldsins þau Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir mæta í fyrri hluta þáttarins og ræða upplýsingaóreiðu, samsæriskenningar og fullyrðingar í baráttunni sem tæplega standast skoðun. 
Í síðari hluta munu Þórhildur Þorkelsdóttir ráðgjafi og hlaðvarpsstjórnandi, Þórarinn Hjartarson hlaðvarpsstjórnandi og Lilja Katrín Gunnarsdóttir útvarpskona rýna í kosningabaráttuna frá ólíkum sjónarhornum, ræða umtalaðar auglýsingar og andlega líðan þjóðar. 

Aug 27, 2026

51 min

Aug 26, 2026

1 hr 6 min

Þriðja Pallborð fréttastofu Vísis að viðræðum fór fram í dag en þar mættu þau Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Jónas Hagan Guðmundsson, fjárfestir og einn stofnenda Já til að sjá sem fulltrúar Já-ara en Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins og Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, áður CCP, mættu fyrir hönd Nei-ara.

Aug 26, 2026

1 hr 6 min

Aug 20, 2026

1 hr 1 min

Evrópumálin eru enn í brennidepli í Pallborðinu. Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að því hvað innganga í Evrópusambandið myndi þýða fyrir ungt fólk á Íslandi. Hvort ætti ungt fólk að kjósa já eða nei? Gestir eru Jóhannes Óli, María Malmquist, Magnea Gná og Steinar Ingi.

Aug 20, 2026

1 hr 1 min

Aug 20, 2026

59 min

Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, og Gréta María Grétarsdóttir, stjórnarkona í Já til að sjá mættu þeim Ernu Bjarnadóttur, stjórnarkonu í Heimsýn, og Júlíusi Viggó Ólafssyni frá Áfram Ísland í pallborðsumræður um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Aug 20, 2026

59 min

Jul 23, 2026

55 min

Rætt var um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu voru Hjörtur J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálafræðingur, Gréta María Grétarsdóttir verkfræðingur, Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og Gauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði.

Jul 23, 2026

55 min

Mar 20, 2025

41 min

Gestir Bjarka Sigurðssonar í Pallborðinu eru þau Hermann Austmar, faðir í Breiðholti, Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, Elísa Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur og Helga Þórðardóttir, formaður skóla- og frístundasviðs borgarinnar.

Mar 20, 2025

41 min

Mar 13, 2025

40 min

Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu, Ólafur Guðmundsson umferðaröryggissérfræðingur, Guðmundur Valur Guðmundsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar og Þorgrímur Sigmundsson þingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi voru gestir Hallgerðar Kolbrúnar E. Jónsdóttur í Pallborðinu.

Mar 13, 2025

40 min

Mar 6, 2025

43 min

Pawel Bartoszek, Friðjón Friðjónsson, Stefán Pálsson og Sigríður Á. Andersen voru gestir Elínar Margrétar Böðvarsdóttur fréttamanns í Pallborðinu á Vísi. 

Mar 6, 2025

43 min

Copyright 2023 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125